Meistaraflokkur kvenna Vestra stendur fyrir knattspyrnumóti yngri flokka um páskana.
Mótið verður haldið miðvikudaginn 1. apríl og er fyrir börn í 8-5. flokki.
Leikmönnum verður skipt upp eftir kyni og aldri.
Mótið fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi og verður leikið á 2-3 völlum í einu. Við munum sjá um að skipta krökkunum í lið áður en mótið hefst
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst og er verð fyrir hvern leikmann 2000 kr. greitt á staðnum.
Mótið fyrir 8. & 7. flokk hefst kl. 10:00
Mótið fyrir 6. & 5. flokk hefst kl. 13:00
ATH mótið er ekki einungis fyrir iðkendur Vestra svo ef þið eigið frænkur og frændur á þessum aldri þá endilega hvetjið þau til að koma með
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna:
[email protected]
[email protected]